Netorka  
FyrirspurnVeftréEnglishSjálfgefið leturMidlungs leturStórt leturBlár bakgrunnur hvítt leturSjónskertir
Leit






Gleymt lykilorð!
STARFSEMI

Allir landsmenn hafa kost á því að velja sér af hvaða raforkusala þeir kaupa raforku. Raforkusala er ekki bundin því orkufyrirtæki sem dreifir raforkunni á viðkomandi svæði, heldur opin öllum þeim sem hafa tilskilin leyfi.

Netorka hf. gegnir því hlutverki að vera sameiginlegt mæligagna- og uppgjörsfyrirtæki fyrir íslenskan raforkumarkað í markaðsvæddu umhverfi. Netorka annast uppgjör og vinnslu sölumælinga og heldur utan um breytingar á viðskiptum raforkuseljenda og kaupenda. Netorka útbýr einnig orkuspár fyrir orkufyrirtækin sem byggir á sögulegum gögnum, félagslegri hegðun og veðurspám.

Uppsetning Netorku á miðlægum gagnagrunni og einföldu skeytakerfi er einstök og fyrsta sinnar tegundar í heiminum í raforkuiðnaðinum. Kerfið tryggir að samskipti og uppgjör á íslenska raforkumarkaðnum verða í senn einfaldari, sveigjanlegri og skilvirkari en gerist hjá öðrum þjóðum.

 

0
SÖLUAÐILASKIPTI

Upplýsingar um öll söluaðilaskipti sem eru framkvæmd í kerfum Netorku eru uppfærðar í hverjum mánuði. Nánar hér...



RAFORKULÖG

Markmið raforkulaga frá 2003 var að hefja samkeppni í viðskiptum með raforku. Meira.



Póstfang: Bæjarhrauni 14 220 Hafnarfjörður +354 520 4800 (sími) +354 520 4801 (fax) uppl(hjá)netorka.is