Notendur
Netorka sem miðlægur aðili, tekur við upplýsingum frá dreifiveitunum um raforkunotkun allra notenda á Íslandi fyrir utan stóriðju. Þetta gerir Netorku kleift að birta fjölda notenda með virkar veitur á landinu öllu. Undir hverri kennitölu, þ.e. hverjum notanda, geta verið fleiri en ein virk veita.
Þar sem sami notandi getur verið með virkar veitur á fleiri en einu dreifiveitusvæði, er fjöldi birtur miðað við landið allt.
Talningar hófust 11. október. Í framhaldi eru upplýsingar frá fyrsta hvers mánaðar.
Excel skjal með tölulegum upplýsingum línurita vegna tölfræði fjölda notenda með virkar veitur.
Í skjalinu er einning hægt að sjá fjölda skipt eftir einstaklingum og fyrirtækjum frá desember 2023.
Síðast uppfært: 1.12.2023
Notendur 2023
Eftirfarandi mynd sýnir heildarfjölda notenda, með virkar veitur, á Íslandi skipt eftir mánuðum frá 11. október 2023 til nýjustu gagna.
